Þá á að gera tilraun með UD blogg einu sinni enn.

Síðasta föstudag fengum við heimsókn frá Afríku, ung stúlka sem ólst upp við erfiðar aðstæður í Uganda sagði okkur frá lífi sínu. Christine er núna kennari og kennir meðal annars hagfræði og landafræði, en ef hún hefði ekki fengið aðstoð frá hjálparstarfi kirkjunnar hefði hún aldrei getað klárað skólann og útskrifast.
Það var mjög gaman að fá Christine í heimsókn og heyra sögu hennar, nokkrar stelpur í deildinni fengu netfang hennar og heimilisfang og ætla þær að halda sambandi við hana.
Næsta föstudag þann 24. okt verður svo aftur voða gaman hjá okkur við fáum Styrmi í heimsókn, Styrmir átti einu sinni heima í Kefló og það er alltaf æðislegt að fá hann í heimsókn. Einnig verðum við með pökkun á jólagjöfum til Úkraínu, við pökkum þeim í skókassa s.s." JÓL Í SKÓKASSA ".
Nánari upplýsingar um Jól í skókassa má fá á
www.kfum.is .
Sjáumst hress á föstudaginn, kveðja Brynja.